Gleðilegt árið!!!

Jæja þá er nýja árið komið og margt að gerast. Ég hef verið að vinna í menntunar og atvinnumálum núna í jólafríinu og er komin með vinnu fyrir næsta sumar hjá DK innréttingum og hvað menntamálin varðar þá er ég að gera allt tilbúið til þess að sækja um master nám í New York og er að fara að send það út núna í febrúar og vonandi kemst ég inn :D

Ég er komin aftur til Ítalíu og skólinn byrjar á mánudaginn og stundaskráin er ekki ennþá ready svo ég veit ekki hvort við verðum í skólanum þessa önnina ;)

Núna er maður bara að njóta þess að þurfa ekki að gera neitt í smá tíma í viðbót :D

Þórunn vinkona eignaðis litla stelpu 4. janúar með Eero og Halla og Kristján eignuðus lítinn strák núna 16. janúar og allt gengur eins og í sögu á báðum heimilum :D

Hef nú ekki meiri fréttir eins og er, ég skal reyna að skrifa meira en ég hef gert en ég er bara eitthvað ekki mjög blogg-vædd þessa dagan en ég skal reyna að bæta ráð mitt :D

Ciao a dopo!!!!

Published in:  on janúar 19, 2008 at 8:44 pm Ummæli (1)

The URI to TrackBack this entry is: http://noola.wordpress.com/2008/01/19/gle%c3%b0ilegt-ari%c3%b0/trackback/

RSS feed for comments on this post.

Ein ummæli Leave a comment.

  1. jeah! hún er á lífi!!!

    gaman að lesa aðeins frá þér.


Leave a Comment