Frekar ósátt!!!!
Ég er að sjá það betur og betur að það er staðreynd að þeir sem eiga mömmu og pabba sem passa engan vegin saman eru alltaf eitthvað gallaðir!!!!!
Lítið á mig, ég er ekki beint gölluð en það er tveir gallar sem ég ber vegna þess að foreldrar mínir passa ekki á nokkurn skapaðan hátt saman, númer eitt þá er ég lesblind og fæ það alveg beint úr föðurættinni og númer tvö er að vegna þess að gena-samsetning foreldra minna passar ekki saman þá er ég svo afskaplega óheppin að hafa fengið alla líkamlega galla úr báðum fjölskyldum!!!!!
Lítið bara a sistkyni mín, þau eru bara “freakin’ gorgeous” öll sömul!!!!! og það er bara vegna þess að gena-samsetning foreldra þeirra passar saman, þrátt fyrir að pabbi minn hafi hætt með barnsmóður númer 2 þá eiga þau samt afskaplega fallegt barn saman en sama sagan gildir ekki um hann og fyrstu barnsmóður hans og ég er náttúrulega óheppna barnið sem kom út úr því “fiasco”!!!!
Mér finnst þetta sem sagt bara svindl og það ætti að setja lögbann við svona vitlaust gena-samsettu fólki!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Nei, þú ert ekki gölluð! og hættu þessari vitleysu!
Endemis bull og vitleysa þú ert nú bara nákvæmlega ekket gölluð! og hana nú !!!
Halló halló, common¨!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég veit nú ekki hvort ég á að móðgast eða …………. bara afneita þér
Þú ert bara frábær og æðisleg og svo klár og dugleg í þínu námi og fagi og þegar þú ert kát og hamingjusöm geislarðu af fegurð, en við getum líka verið eins og grömpý óld wúmen ef við viljum og þá sýnir það sig
Þannig að réttu bara úr bakinu, haltu höfðinu hátt, sveiflaðu hárinu og bé gorgýus, ÞÚ ERT ÆÐI OG HANA NÚ
Knús og kyss til þín frá okkur öllum
Heyrðu mig nú ungfrú góð. Ég hef ekki farið inn á síðuna þína síðan fyrir jól. Datt í hug að kíkja núna í frostinu hér á Fróni og hvað sé ég þá. Þessa líka ótrúlegu skrif þín um að þú sért gölluð. Hver hefur nú ekki einhverja galla? En það sem þú nefnir það er lesblindan þarf nú ekki endilega að vera galli ég er nú ekki viss um að það hefðir svo næmt auga fyrir þrívídd og fleiru sem þú ert snillingur í hefðir þú ekki ,,náðargáfu lesbindunnar” eins og stundum er sagt. Og þó þér finnist hún stundum þvælast fyrir þér ertu löngu búin að yfirvinna þau vandamál og gerir allt sem þú ætlar þér á annað borð. Þú ert eins og þú ert og oftast geislandi glöð, áræðin, útsjónasöm og dugleg að bjarga þér. Svo vertu bara ánægð með þig og berðu höfuðið hátt.
Knús og koss
amma
þeir sem eru ekki eitthvað “gallaðir” eru örugglega ótrúlega leiðinleigir! ég held það allavega – ég þekki engann sem er ekki eitthvað “gallaður”. Annars ertu þú ótrúlega klár og flott elsku frænka mín. Ég mæli með að þú finnir ákveðnu fallegu stelpuna innra með þér (þessa sem fór í gúmmístígvélin og skellti sér í pels yfir nærfötin til að skreppa á næsta bæ!) Ekki voru komplexar að þvælast fyrir þér þá!
Gangi þér vel og vonandi líður þér betur elsku frænka, hlakka til að sjá næstu verkefni þín hér á síðunni.
Sæl kerling,
Skelltu nú inn nýju jákvæðu bloggi, t.d. um fyrstu gönguferð þína og hundsins, þú ert nú ekki einu sinni búin að segja frá honum.
Koma svo með skemmtilegar sögur, ekki svona down pistla meir
Knús og kyss, mamma
Non ci capisco una cicca, sono arrivato qui per due motivi:
il tuo sorriso e la foto della meravigliosa Firenze.
ciao e stame ben!
Hi, are you well-disposed to the political recognition of Kosovo?
bye bye
Have you ever been in Florence?
Did you like it?
I’ve been there 4 days on January for the first time…and now I love Florence!
bye
Ohhhhhh !!!!!
Bella foto di Firenze. Complimenti per il blog.
Molto bella anche l’Islanda, Husavik, Hakureyri, Vik.
Terra davvero indimenticabile
Italy loves Iceland !!!!!!!!!
Hættu þessari sjálfsvorkun.
Þú hefur allt til að bera, nema hæfileikan til að koma auga á það.
Sjálfsvorkun og vanþakklæti hafa kostað mig mikið, ekki láta það sama henda þig Gunnhildur mín.
Þú ættir að vera þakklát fyrir allt það sem þú hefur til að bera.
Ef þú vilt breyta einhverju einbeittu þér þá að lausninni ekki vandanum.
Þinn pabbi.