Gleymdi einu

Ég er komin með nýtt símanúmer: (+39)331 2417724

Published in: on febrúar 28, 2008 at 8:59 pm Rita ummæli

Tilkynning!!!

Í dag fékk ég þær líka yndislegu fréttir að ég er að fara til New York næsta vetur :D

Ég sem sagt komst inn í skólann í New York og núna þarf ég bara að fá að vit hvort námið mitt hérna í Flórens verði metið inn svo ég geti byrjað á öðru eða þriðja ári í skólanum en BFA gráðan tekur 4 ár venjuleg í þeim skóla svo ég er að vonast til að geta byrjað á þriðja ári svo ég verði nú ekki orðin þrítug þegar ég loksins klára skóla partin af lífinu mínu ;)

Þannig að ég dag er ég bara í skýjunum yfir þessu öllu saman :D

Ég og Enzo verum ein heima um helgina vegna þess að Violetta verður í París að hitta gamla bekkjafélaga :D svo við verðum hérna heima í rólegheitum yfir helgina svo ég er að vonast til að Enzo geti hjálpað mér við að snú sólahringnum við, sólahringurinn er núna alveg fullkomlega öfugur hjá mér.

dsc05469.jpg
Ég, Violette og Enzo

Published in: on at 8:57 pm Ummæli (3)

Eurovision

Dr. Spoc er snild og þetta helv…. Euroband á ekki sjéns í að komast eitthvað áfram :( Dr. Spoc hefði unnið Eurovision :(

Enn allavegana núna er næstum því allt komið til New York, sá áðan að þeir eru búnir að fá allt nema einkunnirnar mínar frá Florence Design Academy og ég geri ráð fyrir að þær hafi farið í póst á föstudag eða í dag svo þetta ætti allt að reddast :D Svo er bara að bíða og bíða !!!!!!!

Ég sendi í dag umsókn um námsstyrk sem Landsbankinn veitir á hverju ári og ég er nú ekki neitt að halda að ég fái hann en það skaðar ekki að reyna, flestir sem hafa fengið þessa styrki eru í Harvard eða Oxford eða eitthvað í þá áttina en hvað um það aldrei slæmt að reyna :D

Ég er alveg agalega eitthvað löt, sem er reyndar alveg í anda við mig í byrjun annar, þetta var svona líka síðustu önn svo ég er ekkert stressuð, þetta hefst allt saman :D

Ég ákvað að breyta öllu hjá mér um helgina og byrjaði á því að breyta hefberginu mínu, þvo allan þvott, þrífa allt og síðan er ég núna að rembast við að halda mig á réttri braut í megrauninni endalausu, ég er búin að vera í stanslausu sukki þessa önnina.

Það styttist óðum í að amma og afi komi og síðan Sandra strax á eftir þeim svo ég er farin að hlakka svolítið til :D það verður geggjað, er búin að lengja dvölina í Róm um einn dag svo við höfum meiri tíma og ekkert stress :D

Jæja, hef ekki meira að segja í bili!!!!!

Sí jú leiter!!!!!

Published in: on febrúar 26, 2008 at 1:11 am Ummæli (2)

Komin með internet aftur

Minns var internetlaus yfir helgina og það var bara ömurlegt :( en það kom sætur strákur á mánudags morgun og lagaði það fyrir okkur :D svo núna er minns bara alveg á fullu að hlaða niður til að bæta upp fyrir þess fjóra eða fimm daga sem við vorum ekki tengdar við umheiminn :D

En svona til að stytta okkur stundir í internetleysinu þá fórum við í ferð á laugardaginn með skólanum í skútuverksmiðju þar sem þeir við fengum að sjá allt sem hægt er að sjá um skútugerð og þegar við vourum búin að labba í gegnum alla verksmiðjuna fórum við og hittum arkitektana sem sjá um að hanna skúturnar að innan sem utan. Ástæðan fyrir þessari ferð er sú að við erum að fara að hanna skútu að innan fyrir fyrirtækið sem heitir San Lorenzo yacht og er eitt skemmtilegust verkefnunum sem við höfum fengið þess önnina :D

En alla vegana það var helvíti gaman í þessari ferð og gaman að sjá hvernig svona bátar verða til, það eina sem var kannski ekki beint þægilegt var að það vinna eingöngu karlmenni í þessari verksmiðju og við höfðum bara einn strák í hópnum þannig að okkur leið eins og við værum sýningardýr, ekki þægilegt. En þetta var ekki svo slæmt þar sem arkitektarnir voru með okkur og vinnu”kallarnir” gátu ekki verið að blístra og með læti þar sem þeir voru á staðnum :)

Já, og einn af arkitektunum var alveg helvíti sætur og hafði einhvern alveg einstaklega mikin sjarma og þetta er fyrsti Ítalinn sem ég gæti hugsað mér að falla fyrir, en ég ætla nú ekki að gera það vegna þess að það er nú ekki mikið “point” í því þar sem ég á nú að öllum líkindum ekki eftir að hitta hann aftur nema kannski mögulega þegar við förum að kinna verkefnið ;)

Svo ef það færi svo að ég mindi nú verð hrifin af Ítala þá eru alveg heill hellingur að fólk sem ég er búin að leifi að hlæja af mér :D hehehe það væri nú stuð :D hehe

Hér koma nokkrar myndir úr ferðinni :D

dsc05389.jpg
Anna Cristina, Violetta og minns :D

dsc05394.jpg
Módel af nýja risa skútunni þeirra

dsc05395.jpg
All dótið sem verður inni í nýju risa skútunni

dsc05396.jpg
Við fengum svo agalega fína hjálma ;)

dsc05397.jpg
Já minns fékk svona fína hjálm líka :|

dsc05398.jpg
Þetta er svona alveg risa “köku” form þar sem þeir leggja einn og einn strimil af fiberglas og líma niður með sérstöku lími, einn bátur tekur 7 mánuði til 1 ár að bú til einn svona bát.

dsc05412.jpg
Þarna er komin bátur í “köku” formið ;)

dsc05414.jpg
Þetta er inni í einum bátnum og það er verið að bygja innanstoksmuni inn í skútuna

dsc05438.jpg
Þetta er skútan sem við fórum inn í, hún er alveg að verða tilbúin til afhendingar og allt inni í henni var meira eða minni tilbúið.

dsc05454.jpg
Violetta að koma út úr skápnum :D hehehe :D

dsc05457.jpg
Þessi er tilbúin til afhendingar :D

Og bara svona ef þið eruð að pæla í því þá kostar ein svona skúta eins og við erum að hanna sem er 88 fet 384.000.000 kr.

Þarf að reyna að ná mér í einn af þeim sem kaupa sér svona skútu ;)

Bless í bili :D

Published in: on febrúar 21, 2008 at 12:55 am Ummæli (1)

Sofa á næturnar!!!!

Ég held að ég sé illa haldin af alskonar fíknum og sú skrítnasta er að vilja ekki fara að sofa!!!!! eða þar að segja að vera drullu þreytt en bara hreinlega ekki fá sjálfa mig til þess að loka helv…. tölvunni, slökkva ljósið og fara að sofa í hausin á mér, ég meina hversu erfit getur það verið. Núna er klukkan 5 að morgni og ég þarf að mæta í tíma eftir 5 klukkutíma og vandamálið er ekki að ég sé ekki þreytt :( ég held að þetta sé allt saman tengt því að ég er með nokkur járn í eldinum og get ekki klárað að hamra þau fyrr en ég fæ ýmsa pappíra senda sem ég get síðan sent frá mér!!!!

Ég er sem sagt að sækja um skóla í New York fyrir næsta vetur þar sem ég hef í hyggju að bæta við BA gráðuna mína og fá BFA gráðu sem er viðurkend af FIDER sem gerir það að verkum að ég verð með gráðu sem gengur alls staðar í heiminum. Núna vantar mig bara eitt bréf í viðbót sem er einhvert plagg sem sýnir fram á það að ég sé ekki á leiðini á fá mislinga aðrar barnaveikir, mér finnst þetta reyndar hálf skrítið því þeir vilja ekki að maður fari og láti athuga heilsuna heldur bara hvort ég hafi einhverntíman fengið eitthvað af þessum flensum eða að ég hafi fengi sprautu til þess að sporna við þessum veikindum.

En hvað um það ég á sem sagt að senda þetta allt saman út fyrir 1. mars og gæti farið að fá svar svona upp úr miðjum mars, svo ég held að við séum alveg að horfa upp á mánuð í viðbót af svefnleysi :(

Svo er ég líka búin að fá vinnu næsta sumar og ég bara get ekki beðið eftir að byrja og gera eitthvað í alvöru!!!!!!

Það er líka alveg ofboðslega rólegt í skólanum og við erum eiginlega ekki að gera neitt og öll verkefni eru stop vegna þess að við erum ekki búin að fá teikningar eða eitthvað álíka og svo í þokkabót eiga þau ekki að vera tilbúin fyrr en í apríl svo maður er kannski ekki mjög stressaður.

Amma og afi eru að koma um páskana og það passar svo afskaplega vel að þau koma akkúrat þegar ég byrja í páskafrí og fara síðast daginn minn í fríi svo það gæti bara ekki verið betra. Við ætlum til Rómar, Napólí og Pompei og svo alveg öruglega eitthvað fleira þar sem þau komu líka í fyrra og sá svona nánast allt sem er gaman að sjá hérna í Flórens :D

Þrem dögum eftir að amma og afi eru farin kemur Sandra vinkona og vinkona hennar í heimsókn og verði í viku þannig að það veður alveg nóg að gera hjá okkur að skoða allt :D

Hundurinn er ennþá að stríða mér með því að kúka inni í herbergi hjá mér og virðist bara ekkert ætla að hætta :(

Ég veit ekki hvað ég get sagt meira nema það að við fórum í smá ferð í gær á alveg þá verstu sýningu sem ég hef komið á síðan við byrjuðum í skólanum og við vorum í c.a. hálf tíma að skoða og svo fórum við bara og lögðumst á ströndina í klukkutíma og sváfum, það var það eina sem bjargaði þessari annars drep leiðinlegu ferð :D

Ok, núna ætla að reyna að loka tölvunni og fara að sofa :|

Bless allir saman :D

Published in: on febrúar 11, 2008 at 6:16 am Ummæli (2)

Lucca í Toscana

Published in: on febrúar 6, 2008 at 4:47 am Ummæli (1)

Göngutúr!!!

Halló halló!!!!

Hún ástkær móðir mín er að rukka mig um nýjan pistil og gaf mér þá góðu hugmynda að segja frá gönguferðinni ;)

Í gærkvöldi ákvað ég að stökkva út í hraðbanka að taka út leiguna, en ég þarf að taka hana út í þremur pörtum vegna þess að  bankarnir hérnar leifa mér ekki að taka út meira en 250 € á dag. Allt í lagi með það ég klæði mig og er að fara út um hurðina þegar Violetta kemur og spyr hvort ég geti nokkuð mögulega tekið Enzo (hundinn) með mér vegna þess að hann langi svo mikið út. Ég segi náttúrulega að það sé ekkert mál og við förum saman niður og síðan komum við út en þá er minn ekki alveg sáttur við í hvaða átt við séum að fara vegna þess að hundagarðurinn er í hina áttina og hann er bara lítill hvolpur svo hann bara stoppar og ætlar ekki að haggast. Ég er nú alveg jafn þrjósk og hundurinn og ætlað sko ekki að leyfa honum að komast upp með þetta (þetta var líka í fyrsta skipti sem við vorum að fara út tvo saman ein).

Eftir c.a. eina mínútu erum við búin að þrjóskast bæði frekar mikiði og komin aðeins áleiðis en þá kemur þessi líka helli demba, himnarnir bara opnuðust og það vara eins og það væri helt úr fötu!!!!! Þrátt fyrir þetta þá haggast hundurinn ekki og það endaði með því að ég hélt á hundinum í skjól, síðan biðum við bara eftir að það mesta væri yfirstaðið. Þegar ég taldi vera orðið óhætt að fara af stað þá náttúrlega byrjaði sami leikurinn aftur nema í þetta skiptið var hundurinn lagstur :| En ég þrjóskaðist og að lokum komumst við í bankan.

Þegar við snérum við varð þetta aðeins auðveldara og hann labbaði aðeins meira en áður og vergna þess að ég vissi að hann yrði alveg rosalega glaður og myndi labba beint heim ef við færum framhjá hundagarðinum (hann er lokaður á kvöldin og næturnar) þá tók ég á mig smá link og viti menn núna vissi hann hvar hann var staddur svo að við gátum bara labbað í einum rikk heim og í þokkabót þá pissaði hann tvisvar og kúkaði svo ég var nokkuð ánægð með þessa ferð (þegar hann kúkar heima þá er það alltaf annað hvort fyrir utan hurðina í herberginu mínu eða inni í því ef ég gleymi að loka hurðinni :( og það er ekkert sérstaklega skemmtilegt að vera alltaf að kafna út skítalykt.

En þrátt fyrir þetta þá er hann nú alveg óskaplega sætur og góður :D

Jæja, held ég láti þetta duga í dag

Ciao!!!!

Published in: on febrúar 5, 2008 at 8:26 pm Rita ummæli