Göngutúr!!!

Halló halló!!!!

Hún ástkær móðir mín er að rukka mig um nýjan pistil og gaf mér þá góðu hugmynda að segja frá gönguferðinni ;)

Í gærkvöldi ákvað ég að stökkva út í hraðbanka að taka út leiguna, en ég þarf að taka hana út í þremur pörtum vegna þess að  bankarnir hérnar leifa mér ekki að taka út meira en 250 € á dag. Allt í lagi með það ég klæði mig og er að fara út um hurðina þegar Violetta kemur og spyr hvort ég geti nokkuð mögulega tekið Enzo (hundinn) með mér vegna þess að hann langi svo mikið út. Ég segi náttúrulega að það sé ekkert mál og við förum saman niður og síðan komum við út en þá er minn ekki alveg sáttur við í hvaða átt við séum að fara vegna þess að hundagarðurinn er í hina áttina og hann er bara lítill hvolpur svo hann bara stoppar og ætlar ekki að haggast. Ég er nú alveg jafn þrjósk og hundurinn og ætlað sko ekki að leyfa honum að komast upp með þetta (þetta var líka í fyrsta skipti sem við vorum að fara út tvo saman ein).

Eftir c.a. eina mínútu erum við búin að þrjóskast bæði frekar mikiði og komin aðeins áleiðis en þá kemur þessi líka helli demba, himnarnir bara opnuðust og það vara eins og það væri helt úr fötu!!!!! Þrátt fyrir þetta þá haggast hundurinn ekki og það endaði með því að ég hélt á hundinum í skjól, síðan biðum við bara eftir að það mesta væri yfirstaðið. Þegar ég taldi vera orðið óhætt að fara af stað þá náttúrlega byrjaði sami leikurinn aftur nema í þetta skiptið var hundurinn lagstur :| En ég þrjóskaðist og að lokum komumst við í bankan.

Þegar við snérum við varð þetta aðeins auðveldara og hann labbaði aðeins meira en áður og vergna þess að ég vissi að hann yrði alveg rosalega glaður og myndi labba beint heim ef við færum framhjá hundagarðinum (hann er lokaður á kvöldin og næturnar) þá tók ég á mig smá link og viti menn núna vissi hann hvar hann var staddur svo að við gátum bara labbað í einum rikk heim og í þokkabót þá pissaði hann tvisvar og kúkaði svo ég var nokkuð ánægð með þessa ferð (þegar hann kúkar heima þá er það alltaf annað hvort fyrir utan hurðina í herberginu mínu eða inni í því ef ég gleymi að loka hurðinni :( og það er ekkert sérstaklega skemmtilegt að vera alltaf að kafna út skítalykt.

En þrátt fyrir þetta þá er hann nú alveg óskaplega sætur og góður :D

Jæja, held ég láti þetta duga í dag

Ciao!!!!

Published in: on febrúar 5, 2008 at 8:26 pm Rita ummæli

The URI to TrackBack this entry is: http://noola.wordpress.com/2008/02/05/gongutur/trackback/

RSS feed for comments on this post.

Leave a Comment