Jæja, …

… hvernig væri nú að blogga svolítið!!!!

Þá er fyrsta einkunn annarinnar í höfn og ég fékk A :D geggjað góð!!!!! bara tvær villur :D

Annars er allt ágætt að frétta, allt vitlaust að gera, var í The Hamptons um helgina að passa og reyndi að vinna eins mikið og ég gat í öllum verkefninum mínum og kom heim á sunndaginn, er búin að vera að vinna í verkefnum síðan og verð að vinna í verkefnum hér eftir, IT IS LIKE THE NEVER ENDING STORY!!!!

Amma er búin að kaupa flugmið hingað  um miðjan mars og ég hlakka bara ekkert smá til!!!! Þá verð ég líka í vor fríi svo ég ætla að taka mér þessa 5 daga í frí frá verkefnum (reyna að vera alveg í fríi) reyndar eru nokkrir kennarar að segja okkur núna að við þurfum að vinna verkefni í vor fríinu, sem mér finnst nú bara frekar asnalegt, því þetta heitir vor FRÍ en þeir virðast ekki vera alveg á því að leifa okkur að vera í fríi.

Ég fór til námsráðgjafa í dag til þess að fara yfir mín mál og það er komið í ljós að ég get ekki klárað fyrr eins og ég ætlaði að reyna að gera með því að vera í sumarskóla vegna þess að það er bara hægt að taka 5 einingar í sumarskóla sem kemur þannig út að ég næ ekki að taka 15 einingar önnina þar á eftir, sem ég verð að  taka vegna þess að annars fæ ég ekki námslán frá LÍN. Þetta lið er alveg sérstaklega þvert og erfit við mann!! En það sem ég get gert er að taka 2 einingar (einn áfanga) í sumarskóla og taka síðan einn val áfanga á haustönninni, en þar á móti kemur að ég þarf bara að taka 3 einingar í viðbót til að fylla upp í valeininga kvótan minn. Og svona heldur þetta áfram ….. endalaust!!! Veit ekki alveg hvað ég á að gera í þessu öllu saman!! Er ekkert vit í því að koma heim þrátt fyrir að ég fái vinnu vegna þess að ég þarf að borga leiguna og reikningana hérna hvort sem er.

Ég sótti um námsstyrk í dag í gegnum skólan og vonandi fæ ég hann, 1500 dalir sem ég fengi endurgreidda fyrir þessa önn og síðan get ég sótt um hann aftur fyrir næsta ár og þá fengi ég 1500 dali fyrir hvora önn. Manni finnst nú svolítið eins og maður sé að betla þess peninga, því maður þarf að bera sig óttalega aumingjalega til þess að sækja um, skrifa bréf sem segir afhverju “sponsorinn” minn getur ekki látið mig hafa eins mikla peninga og ég þarf og síðan þarf “sponsorinn” líka að skrifa bréf þar sem kemur fram afhverju hann er ekki í sömu stöðu og hann var í þegar ég kom hingað. Hálf kjánalegt eitthvað finnst mér, mér finnst nú bara að þeir ættu að líta á hvernig manni gangi í skólanum og hvað kennararnir manns segja um mann, þetta ætti að var verðlaun fyrir góða framistöðu en ekki betl.

Í síðustu viku fékk ég rosaleg “fallegt” bréf þar sem fram kom að ég hafi verið sett á lista yfir afburða nema, þar sem ég kláraði að minnsta kosti 12 einingar og var með meira en 3.5 í GPA (Grade Point Average=meðal einkunn) á síðustu önn, en ég kláraði 16 einingar og var með 3.75 GPA. Mér fannst það nú bara frekar skemmtilegt að fá svona hól frá skólanum sem gerði það náttúrulega að verkum að núna er ég ennþá staðránari í því að fá A í öllum áföngunum mínum þess önnina (vona bara að það takist, verður ekki mikið um svefn þessa önnina).

Jæja, ætli sé ekki best að halda áfram með smjörið og fara að gera eitthvað.

Bless í bili!!!

P.S. Ég held að það sé gas leki í íbúðinni minni og húsvörðurinn svara ekki í síman :( veit ekki alveg hvað ég verð að gera!!! En ég er með opinn gluggan sem er við hliðina á gas intakinu svo ég held ég eigi alveg eftir að lifa þetta af, þið þurfið ekkert að hafa áhyggjur :D

Knús og koss!!!

Published in: on febrúar 18, 2009 at 12:25 am  Ummæli (2)  

The URI to TrackBack this entry is: http://noola.wordpress.com/2009/02/18/j%c3%a6ja-2/trackback/

RSS feed for comments on this post.

2 UmmæliSkrá ummæli

  1. Sæl elskan
    Viltu gjöra svo vel og láta kanna þenna leka strax!!!!!!!!!
    Annars er þetta góður pistill eins og alltaf. Bolurinn á peysunni kominn upp að höndum, byrja á ermunum á morgun.
    Hafðu það gott og gangi þér vel
    Knús og koss
    afi og amma

  2. Hæ, held að ég gleymi alltaf að kommenta á hjá þér :)
    En ég kíki allavega reglulega á síðuna þína, og er rosalega stolt af þér að vera svona dugleg út í Ameríkunni! Til hamingju með góðu einkunnirnar þínar, enda held ég að þú eigir þær skilið .. ertu ekki alltaf læra :)

    kv. Jónína!


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.